fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Pressan

Lúxushótelverkefni Trump í biðstöðu – Játaði skjalafals

Pressan
Fimmtudaginn 22. maí 2025 07:30

Trump International Hotel Las Vegas. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lúxushótelverkefni á vegum Donald Trump hefur verið sett í biðstöðu eftir að opinber starfsmaður játaði að hafa falsað skjöl sem tengjast verkefninu.

Um 500 milljóna dollara verkefni í Serbíu er að ræða. Þar ætlar Trump að reisa fyrsta Trump International hótelið í Evrópu. En nú er verkefnið í uppnámi í kjölfar þess að opinber serbneskur starfsmaður hefur játað að hafa falsað skjöl til að hraða verkefninu.

Jared Kushner, tengdasonur Trump, sér um verkefnið fyrir hönd Trump og hefur annast umsóknir um leyfi varðandi byggingu hótelsins. Til stendur að byggja hótelið í Belgrad á lóð þar sem leifar af júgóslavneska varnarmálaráðuneytinu standa enn. Byggingin skemmdist mikið í loftárásum NATÓ 1999.

Trump hefur að sögn haft áhuga á að eignast lóðina síðan 2014 og hefur að sögn engar áhyggjur af áhyggjum heimamanna af því að eyðileggja eigi sögulegan stað með því að byggja bandarískt lúxushótel þar.

Honum tókst loks á síðasta ári að fá byggingarleyfi en nú er málið komið í hnút að sögn The New York Times sem segir að Goran Vasic, fyrrum forstjóri þeirrar stofnunar sem sér um vernd sögulegra staða, hafi verið handtekinn eftir að hafa játað að búið til sérfræðiálit til að réttlæta að lóðin verði svipt þeirri vernd sem hún hefur notið sem sögulegur staður en sú vernd tryggði að ekki mætti hreyfa við lóðinni eða því sem stendur á henni.

Verndin var felld úr gildi tæpum tveimur vikum eftir að Trump sigraði í forsetakosningunum á síðasta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Hann hvarf 6 vikum eftir brúðkaupið – 70 árum síðar var sannleikurinn afhjúpaður

Hann hvarf 6 vikum eftir brúðkaupið – 70 árum síðar var sannleikurinn afhjúpaður
Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Tölfræðin sýnir að þessar 10 bílategundir endast lengur en 500.000 kílómetra

Tölfræðin sýnir að þessar 10 bílategundir endast lengur en 500.000 kílómetra
Pressan
Í gær

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna

Hefja vinnu við uppgröft og vonast til að bera kennsl á lík allt að 800 barna
Pressan
Í gær

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“

Harmleikur í Airbnb-íbúð – „Þá væru dóttir mín og barnabarn enn á lífi“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Martröð á opnu hafi – Skútan sökk og við tók barátta upp á líf og dauða

Martröð á opnu hafi – Skútan sökk og við tók barátta upp á líf og dauða
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“

„Hún fær að ráða og skyndilega fær hann ekki standpínu“
Pressan
Fyrir 2 dögum
Geta konur ratað?