fbpx
Fimmtudagur 22.maí 2025
Pressan

Sæðisrugl – Eignuðust 25-75 börn vegna skorts á reglum

Pressan
Þriðjudaginn 22. apríl 2025 03:15

Reglum var greinilega ekki fylgt. Mynd úr safni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi hollenskra sæðisgjafa hefur eignast mun fleiri börn en heimilt er samkvæmt löggjöfinni þar í landi. Þeir hafa hver og einn „eignast“ að minnsta kosti 25 börn og sumir 75.

Sem betur fer eru margir tilbúnir til að rétta fram hjálparhönd og gerast sæðisgjafar til að hjálpa pörum sem geta ekki eignast börn sjálf.

Þessu fylgir auðvitað að erfðaefni sæðisgjafanna fer út um víðan völl og í sumum tilfellum mun víðar en heimilt er.

Hollensk yfirvöld segja að minnst 85 sæðisgjafar hafi „eignast“ minnst 25 börn hver þrátt fyrir að hver og einn megi bara „aðstoða“ 12 konur.

Rannsókn yfirvalda leiddi í ljós að sæðisbankar og tæknifrjóvgunarstofur hafa árum saman brotið lögin.

Segja yfirvöld að sæðisbankarnir og tæknifrjóvgunarstofurnar hafi ekki fyllt út viðeigandi skjöl eða fengið samþykki hjá sæðisgjöfunum og einnig hafi þeim verið leyft að gefa sæði hjá fleiri en einum sæðisbanka.

The Guardian skýrir frá þessu og hefur eftir kvensjúkdómalækninum Marieke Schoonenberg að fjöldi „ofursæðisgjafa“ eigi að vera núll en hlutirnir hafi ekki verið gerðir eins og á að gera þá.

Flestir mannanna hafa „eignast“ 25-40 börn en sumir allt að 75.

Minnst 10 frjósemislæknar eru meðal gjafanna, meðal þeirra er hinn alræmdi Jan Karbaat, sem var viðriðinn stórt hneykslismál þegar upp komst að hann hefði „eignast“ að minnsta kosti 81 barn eftir að hafa notað eigið sæði á sinni eigin stofu.

Sá sem hefur „eignast“ flest börn er Jonathan Jacob Meijer sem hefur „eignast“ minnst 550 börn um allan heim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Eiturlyfjakafbátar flytja dóp til Evrópu

Eiturlyfjakafbátar flytja dóp til Evrópu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkin gætu misst milljarða dollara tekjur af ferðamönnum

Bandaríkin gætu misst milljarða dollara tekjur af ferðamönnum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Afbóka ferðir eftir spádóm í teiknimyndasögu um gríðarlegar hamfarir

Afbóka ferðir eftir spádóm í teiknimyndasögu um gríðarlegar hamfarir
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir um krabbamein Bidens – „Ég er dálítið hissa“

Læknir um krabbamein Bidens – „Ég er dálítið hissa“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vildi fá gluggasætið í 11 klukkustunda flugferð – Svar konunnar er frábært

Vildi fá gluggasætið í 11 klukkustunda flugferð – Svar konunnar er frábært
Pressan
Fyrir 3 dögum

Skilja ekki af hverju fuglar í einni borg eru að drepast í hrönnum

Skilja ekki af hverju fuglar í einni borg eru að drepast í hrönnum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vísindamenn ætla að „deyfa sólarljósið“ í nýrri tilraun vegna loftslagsbreytinganna

Vísindamenn ætla að „deyfa sólarljósið“ í nýrri tilraun vegna loftslagsbreytinganna
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Hryllingshúsið í Gloucester“ var vettvangur hroðalegra myrkraverka West-hjónanna

„Hryllingshúsið í Gloucester“ var vettvangur hroðalegra myrkraverka West-hjónanna