fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Pressan

Martröð Pelicot-fjölskyldunnar er ekki lokið – Rannsaka fleiri alvarlegar ásakanir

Pressan
Miðvikudaginn 19. mars 2025 04:09

Caroline sést hér með bróður sínum, David. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Martröð Pelicot-fjölskyldunnar er alls ekki lokið þótt fjölskyldufaðirinn Dominique Pelicot hafi verið dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa í tæp 10 ár leyft tugum manna að nauðga eiginkonu sinni, Giséle.

Samkvæmt fréttum franskra fjölmiðla þá stefnir í fleiri réttarhöld yfir Dominique vegna mjög alvarlegra ásakana.

Mál Giséle hefur verið sagt vera eitt skelfilegasta dómsmálið í franskri réttarfarssögu. Dominique var fundinn sekur um að hafa deyft eiginkonu sína hvað eftir annað á tíu ára tímabili og að hafa leyft fjölda ókunnugra karlmanna að nauðga henni á meðan hún var meðvitundarlaus. Þetta fór allt fram á heimili þeirra í franska bænum Mazan. Hann tók ofbeldið upp og geymdi upptökurnar í tölvunni sinni.

Í öll þessi ár grunaði engan neitt og allir héldu að Dominique væri hinn fullkomni eiginmaður, faðir og afi, allt þar til leyndarmálin komu fram í dagsljósið. En nú virðist sem enn eigi eftir að velta mörgum steinum við í málum Dominique.

Þegar réttað var yfir Dominique síðasta haust kom fram að í tölvu hans hefðu einnig fundist myndir af dóttur þeirra hjóna, Caroline Darian, liggjandi meðvitundarlaus í rúmi, aðeins íklædd stuttermabol og nærfötum.

Caroline sagði fyrir dóminn að hún myndi ekki eftir þessu og kannaðist ekki við nærfötin sem hún var í á myndinni.

Hún er nú svo sannfærð um að faðir hennar hafi einnig brotið gegn henni og hefur því lagt fram kæru á hendur honum.

„Ég lít á mig sem gleymda fórnarlambið í þessu máli. Giséle var nauðgað þegar hún var meðvitundarlaus, það vitum við. Eini munurinn á máli hennar og mínu er að í hennar tilfelli eru til sannanir,“ sagði hún meðal annars fyrir rétti.

AP segir að í kærunni séu talin upp 10 lögbrot, þar á meðal að henni hafi verið byrluð ólyfjan sem gerði hana meðvitundarlausa svo hægt væri að nauðga henni eða brjóta gegn henni á annan hátt kynferðislega.

Dominique hefur staðfastlega neitað að brotið kynferðislega á dóttur sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti gullfundur sögunnar gæti orðið efnahagsleg martröð fyrir Trump

Stærsti gullfundur sögunnar gæti orðið efnahagsleg martröð fyrir Trump
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hófdrykkjufólk er í aukinni hættu á að fá krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma

Hófdrykkjufólk er í aukinni hættu á að fá krabbamein og hjarta- og æðasjúkdóma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Það þarf að þvo hana daglega – Svona gerir þú hana almennilega hreina

Það þarf að þvo hana daglega – Svona gerir þú hana almennilega hreina
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Hann veifaði lögfræðigráðu sinni og peningum eins og sverði og skildi til að kúga og þagga niður í þolendum sínum.“

„Hann veifaði lögfræðigráðu sinni og peningum eins og sverði og skildi til að kúga og þagga niður í þolendum sínum.“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Elon Musk sagður tryggja eigin hagsmuni um leið og hann sker niður hjá öðrum

Elon Musk sagður tryggja eigin hagsmuni um leið og hann sker niður hjá öðrum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Mikil fækkun á komum erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna

Mikil fækkun á komum erlendra ferðamanna til Bandaríkjanna