fbpx
Þriðjudagur 10.febrúar 2026
Pressan

Var komin 38 vikur á leið þegar hún hvarf – Lögregla varpar ljósi á átakanlega atburðarás

Pressan
Fimmtudaginn 4. desember 2025 07:00

Rebecca og unnusti hennar sem er grunaður um aðild að málinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin 22 ára gamla Rebecca Park var komin 38 vikur á leið þegar hún hvarf í byrjun nóvembermánaðar. Hvarfið vakti mikla athygli í heimabæ hennar, Boon í Michigan, og var tíu þúsund dollurum heitið hverjum þeim sem gæti gefið upplýsingar um hvarfið.

Það var svo þann 25. nóvember að faðir Rebeccu, sem hafði leitað hennar dag og nótt, gekk fram á lík hennar í skóglendi skammt frá heimili móður hennar. Óhætt er að segja að skelfileg sjón hafi mætt föðurnum því búið var að fjarlægja barnið úr móðurlífi Rebeccu.

Lögregla hefur rannsakað málið undanfarna daga og tilkynntu saksóknarar í fyrradag að par hefði verið handtekið, grunað um morðið á Rebeccu.

Það sem gerir málið sérstaklega óhugnanlegt er að hin handteknu eru móðir Rebeccu og stjúpfaðir hennar, Cortney og Bradley Bartholomew, 40 og 47 ára.

Cortney og Bradley voru úrskurðuð í gæsluvarðhald og sagði saksóknarinn, Johanna Carey, fyrir dómi að þau hefðu frelsissvipt Rebeccu daginn sem hún hvarf og farið með hana á heimili sitt þar sem hún var bundin. Þau óku svo með hana á afskekktan stað þar sem þau stungu hana til bana og fjarlægðu barnið úr móðurlífi hennar. Við sama tilefni sagði Carey að barnið hefði ekki lifað af, en gaf ekki frekari upplýsingar.

Bartholomew-hjónin hafa verið ákærð fyrir tvö morð, pyntingar, samsæri og árás á barnshafandi konu með það að markmiði að valda fósturláti eða andvana fæðingu.

Tveir aðrir fjölskyldumeðlimir höfðu áður verið ákærðir í tengslum við málið, þar á meðal systir Rebeccu, sem er sökuð um að ljúga að lögreglu og unnusti Rebeccu, Richard Falor.

Rannsókn lögreglu heldur áfram en í samtali við Detroit Free Press í gær sagði frænka Bradley að hann og Cortney hefðu viljað eignast barn en ekki getað orðið barnshafandi.

Málið hefur valdið miklu uppnámi í samfélaginu og mættu tugir manna í dómsal til að krefjast réttlætis fyrir Park og barn hennar.

Cortney og Bradley.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Birgir Ómar er látinn

Nýlegt

Pressan
Í gær

Gefa milljónir tonna af kartöflum – Aðrir kartöflubændur eru ósáttir

Gefa milljónir tonna af kartöflum – Aðrir kartöflubændur eru ósáttir
Pressan
Í gær

Eiginkona Chomskys svarar fyrir Epstein-skjölin og útskýrir vinskap þeirra- „Þetta voru alvarleg mistök og dómgreindarbrestur“

Eiginkona Chomskys svarar fyrir Epstein-skjölin og útskýrir vinskap þeirra- „Þetta voru alvarleg mistök og dómgreindarbrestur“
Pressan
Í gær

Frakkar afnema lög sem kveða á um að það sé skylda fólks í hjónabandi að stunda kynlíf

Frakkar afnema lög sem kveða á um að það sé skylda fólks í hjónabandi að stunda kynlíf
Pressan
Í gær

Segja svefnskort geta skaðað hjartað meira en reykingar

Segja svefnskort geta skaðað hjartað meira en reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Greindist fyrst á níræðisaldri með „keltnesku bölvunina“ sem margir Íslendingar þekkja – „Þvílíkur léttir“

Greindist fyrst á níræðisaldri með „keltnesku bölvunina“ sem margir Íslendingar þekkja – „Þvílíkur léttir“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vísindamenn vara við tveimur veirum sem gætu valdið næsta heimsfaraldri

Vísindamenn vara við tveimur veirum sem gætu valdið næsta heimsfaraldri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda

Telur sig hafa sönnun fyrir að Facebook hleri samtöl notenda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi

Sumum liggur alltaf hátt rómur – Þetta segir það um viðkomandi