fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Pressan

Ungur maður nauðgaði ókunnugri konu á sextugsaldri á almannafæri því hann var hreinn sveinn

Pressan
Sunnudaginn 9. nóvember 2025 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður hefur verið handtekinn í Minnesota vegna nauðgunar sem átti sér stað í síðustu viku. Málið hefur vakið athygli því maðurinn hefur játað brotið en afsakar það með vísun til þess að hann hafi verið óspjallaður.

Þolandinn, 51 árs gömul kona, var í göngutúr þriðjudagskvöldið 28. október. Hún var í símanum að spjalla við kunningja sinn. Þá réðst á hana ungur maður, dró hana af gangstéttinni yfir á afskekktan stað þar sem hann braut á henni. Konan var enn í símanum þegar árásin hófst og bað kunningjann um að hafa samband við lögreglu. Maðurinn tók svo fyrir munn hennar og tók hana kyrkingartaki á meðan hann nauðgaði henni. Konan reyndi að verja sig. Hún beit geranda sinn og tókst að slá af honum gleraugun. Gleraugun áttu eftir að koma upp um gerandann.

„Hinn grunaði virtist kæra sig kollugann um að hann væri að brjóta á henni á almannafæri,“ segir í yfirlýsingu lögreglu.

Eftir að maðurinn hafði lokið sér af flúði hann af vettvangi. Konan hafði strax samband við lögreglu og kærði brotið. Lögregla bað almenning um aðstoð og birti mynd af gleraugunum. Fjölskylda gerandans, Tristen Alan Leritz, sá myndina af gleraugunum og hafði samband við lögreglu.

Leritz, sem er 21 árs, var svo handtekinn og játaði brotið. Hann taldi sig þó hafa góða og gilda ástæðu fyrir glæpnum.

Hann sagðist hafa verið úti á hjóla þegar hann sá konuna á gangi og hugsað: „Fjandinn hafi það, fyrst ég er nú hreinn sveinn“. Hann hjólaði svo á undan henni, sat fyrir henni og stökk svo á hana með framangreindum hætti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali
Pressan
Fyrir 4 dögum

Segir að svona tali Repúblikanar um Trump á bak við luktar dyr

Segir að svona tali Repúblikanar um Trump á bak við luktar dyr
Pressan
Fyrir 4 dögum

Súr út í vinkonu sem sveik loforð um að gæta kattarins

Súr út í vinkonu sem sveik loforð um að gæta kattarins
Pressan
Fyrir 5 dögum

Skellti sér einn í bekkpressu og lét lífið í skelfilegu slysi

Skellti sér einn í bekkpressu og lét lífið í skelfilegu slysi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Raðspýtarinn í New York var barinn til óbóta eftir yfirheyrslu hjá lögreglu

Raðspýtarinn í New York var barinn til óbóta eftir yfirheyrslu hjá lögreglu