fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Pressan

Gagnrýnir „pirrandi“ Kourtney Kardashian – „Hún gerir mig brjálaða“

Pressan
Sunnudaginn 9. nóvember 2025 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikkonan Jennifer Lawrence gagnrýndi elstu Kardashian-systurina Kourtney harkalega þegar hún tók lygamælipróf með Robert Pattinson, meðleikara sínum úr Die My Love og Vanity Fair á föstudag.

„Kourtney er meira pirrandi en nokkru sinni fyrr. Hún gerir mig brjálaða,“ sagði Lawrence þegar hún ræddi ást sína á Kardashian-fjölskyldunni og raunveruleikasjónvarpi.

Eftir að Pattison bað hana um útskýringar sagði Lawrence: „Því allt verður að vera tilkynning. Það er eins og, þú veist, ég ætla ekki að vera í fötum lengur. Eins og, bara klæddu þig í það sem þú vilt. Ekki gera tilkynningu um það.“

Eða eins og, ég er ekki með sjónvarp í herberginu mínu. Bara ekki horfa á sjónvarp. Hættu að tilkynna það.“

„Þú talar um ást þína á raunveruleikasjónvarpi. Fylgist þú enn með’Kardashians’?“ spurði Pattinson Lawrence fyrr í myndskeiðinu.

„Ekki þessa þáttaröð. Ég hef verið á TikTok en nei,“ svaraði Lawrence, áður en hún hélt á loft mynd af Khloé Kardashian.

„Er þessi kona uppáhalds Kardashian-konan þín?“ spurði hann, sem fékk Lawrence til að svara fljótt með afdráttarlausu „Já“.

Lawrence dásamaði einnig SKIMS-merkjaútgáfu Kim Kardashian þegar hún afhjúpaði fyrir meðleikara sínum að hún hefði „notað nokkur“ merki áður.

Kim kynnti nýju línuna sína í október með nokkuð vandræðalegri herferð sem sýndi leikþátt sem bar heitið „Does The Carpet Match The Drapes?“ Það er hvort háralitur kvenna væri sá sami á höfði og á píku. En með nýrri línu Kim var hægt að fá hvaða lit sem er á neðri hárin.

Lawrence viðurkenndi að hún ætlaði ekki að kaupa vörur úr nýju línuna.

„Ég fæ þær frítt,“ grínaðist hún og horfði beint í myndavélina.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar

Faðir varar ungmenni við eftir dauða 13 ára dóttur sinnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali

Telur að Weinstein hafi afplánað sinn dóm vegna kynferðisbrota og segist fyrirgefa honum í hneykslanlegu viðtali
Pressan
Fyrir 4 dögum

Segir að svona tali Repúblikanar um Trump á bak við luktar dyr

Segir að svona tali Repúblikanar um Trump á bak við luktar dyr
Pressan
Fyrir 4 dögum

Súr út í vinkonu sem sveik loforð um að gæta kattarins

Súr út í vinkonu sem sveik loforð um að gæta kattarins
Pressan
Fyrir 5 dögum

Skellti sér einn í bekkpressu og lét lífið í skelfilegu slysi

Skellti sér einn í bekkpressu og lét lífið í skelfilegu slysi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Raðspýtarinn í New York var barinn til óbóta eftir yfirheyrslu hjá lögreglu

Raðspýtarinn í New York var barinn til óbóta eftir yfirheyrslu hjá lögreglu