fbpx
Föstudagur 12.desember 2025
Pressan

14 ára drengur varð fyrir járnbrautalest á Englandi

Pressan
Laugardaginn 29. nóvember 2025 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á miðvikudag varð hörmulegt slys í Nottingham-skíri á Englandi er 14 ára drengur, Joshua Travis, varð fyrir járnbrautarlest.

Lögregla og sjúkralið fór á vettvang skömmu eftir að tilkynnt var um slysið en Joshua reyndist vera látinn. Ekki er talið að andlát hans hafi borið að með saknæmum hætti en ekki hafa verið veittar frekar upplýsingar um hvað olli því að hann var staddur á lestarteinunum þegar lestin fór hjá.

Foreldrar Joshua sendu frá sér meðfylgjandi mynd af honum auk yfirlýsingar. Þar segja þau að hann hafi verið fullur af lífsorku og smitandi lífsgleði.

Þess má geta að Joshua lék sem markvörður í unglingaakademíu Nottingham Forest liðsins og þótti vera efnilegur knattspyrnumaður. Félagið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir Joshua hafi verið frábær markvörður og mikill persónuleiki í liðshópnum. Hann hafi haft indæla nærveru og skemmtilegan húmor. Hans er afar sárt saknað í félaginu.

Sjá nánar hér og hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísland upp um eitt sæti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf

Hélt hún væri að fara að hitta draumaprinsinn en í staðinn beið hennar kunnuglegt andlit og grunn gröf
Pressan
Fyrir 2 dögum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum

19 ára drengur grunaður um að hafa reynt að ræna þremur börnum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Upprættu satanískan barnaníðshring – „Þetta efni var sérstaklega skelfilegt“

Upprættu satanískan barnaníðshring – „Þetta efni var sérstaklega skelfilegt“
Pressan
Fyrir 6 dögum

29 ára ballerína slær frægum milljarðamæringum við – Hætti að dansa og tók mikla áhættu

29 ára ballerína slær frægum milljarðamæringum við – Hætti að dansa og tók mikla áhættu