Það lá fljótlega ljóst fyrir að Emma hafði verið kyrkt en hins vegar lá ekki ljóst fyrir hver hafði banað henni. Tæpum 20 árum síðar stóð lögreglan enn með óleyst málið í höndunum. Rannsókn þess hafði kostað sem nemur mörgum tugum milljóna íslenskra króna.
En á síðasta ári rættist loksins úr og málið leystist og morðinginn fannst, þökk sé mold sem var á líki Emmu og á staðnum þar sem lík hennar fannst.
Iain Packer var í kastljósi lögreglunnar strax 2005 og fann lögreglan þá mold á fatnaði hans. En þá var tæknin ekki nægilega fullkominn til að hægt væri skera úr um hvort hún væri frá staðnum þar sem lík Emmu fannst.
Iain var þekktur meðal vændiskvenna fyrir að beita þær ofbeldi og nauðga. Þær höfðu látið lögregluna vita af hegðun hans en hún tók ekkert mark á tilkynningum þeirra og rannsakaði málið ekki.
Á síðasta ári tókst háskólaprófessor að slá því föstu með 97% vissu að moldin sem fannst á Iain væri frá staðnum þar sem Emma var myrt. Þar með tókst að tengja hann við morðvettvanginn og morðið.
Hann var dæmdur í 36 ára fangelsi fyrir morðið og kynferðisbrot og ofbeldi gagnvart 22 öðrum vændiskonum.
Í kjölfar dómsins kvartaði móðir Emmu undan vinnubrögðum lögreglunnar í Stathclyde sem baðst í kjölfar afsökunar. En það dugði ekki til því ákveðið var að hefja sérstaka rannsókn á vinnubrögðum lögreglunnar við rannsóknina á morðinu á Emmu.
Það lá ekki í kortunum að Emma myndi enda sem vændiskona. Hún átti góða og hamingjusama æsku en þegar systir hennar lést af völdum krabbameins 1998 varð hún fyrir miklu andlegu áfalli og átti mjög erfitt.
Þá verandi unnusti hennar ráðlagði henni þá að taka heróín til að takast á við þunglyndið. Nokkrum mánuðum síðar var hún svo djúpt sokkin í neyslu að hún neyddist til að byrja í vændi til að geta fjármagnað neysluna.