Brúnbirnir eru friðaðir í ríkjum Evrópusambandsins en þrátt fyrir það gæti brúnbjarnakjöt fljótlega verið fáanlegt í kjötborðum verslana í Slóvakíu. Ástæðan er að ríkisstjórn landsins hefur samþykkt áætlun um að heimila sölu á bjarndýrakjöti.
BBC skýrir frá þessu og segir að dýraverndurnarsinnar og stjórnarandstaðan gagnrýni þessi áform harðlega.
Ríkisstjórnin samþykkti í apríl áætlun um að heimila að fjórðungur þeirra 1.300 brúnbjarna, sem lifa í landinu, verði skotinn. Var þessi ákvörðun tekin í kjölfar nokkurra banvænna árása bjarndýra á fólk.
Nú gengur ríkisstjórnin enn lengra og ætlar að heimila að kjötið af dýrunum verði selt og er það gert til að koma í veg fyrir að það fari til spillis.