Bertulazzi var meðlimur í hinum illræmdu Rauðu herdeildum sem voru áberandi á áttunda og níundar áratugnum.
Bertulazzi er nú 72 ára og hafði verið á flótta í 40 ár eða síðan ítalskur dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði tekið þátt í mannráni þar sem starfsmanni auðugrar fjölskyldu í Genoa var rænt. Manninum var rænt í janúar 1977 nærri heimili hans í Castelletto í Genoa. Tveir menn gripu hann og drógu inn í Fiat 132.
Eftir fjögurra mánaða samningaviðræður við fjölskyldu mannsins fengu Bertulazzi og samstarfsfólk hans einn og hálfan milljarð líra sem lausnargjald fyrir manninn.
Ítölsk yfirvöld segja að peningarnir hafi verið notaðir til að fjármagna morðið á Aldo Moro, fyrrum forsætisráðherra. Hluti fésins var notaður til að leigja íbúð í Róm þar sem Moro var haldið föngnum eftir að honum var rænt 1978. Hann var síðan skotinn til bana í íbúðinni. Lík hans fannst 55 dögum eftir að honum var rænt. Það var í farangursrými bíls sem hafði verið skilinn eftir mannlaus.
Bertulazzi var dæmdur í 27 ára fangelsi að honum fjarverandi. Hann dúkkaði síðan upp í Argentínu 2002 en þangað kom hann frá Chile með falsað vegabréf. Honum tókst að fá umsókn um hæli samþykkti og bjó sem frjáls maður í Argentínu eftir það, þar til á föstudaginn.
Eftir að hægrimaðurinn Javier Milei komst til valda í Argentínu í desember á síðasta ári, missti Bertulazzi stöðu sína sem flóttamaður.