Fornleifafræðingar hafa nú öðlast skilning á af hverju fólk dró heilar tennur úr sér en þetta var gert á Taívan til forna og einnig víðar í Asíu. Ástæðan er ekki andfýla.
Fólk um allan heim lét draga tennur úr sér eða gerði sjálft til forna án deyfingar. Þetta var algengast á Taívan, suðaustur Asíu og Pólinesíu. Það var fyrir um 4.800 árum sem fólk á þessum svæðum lærði þetta og þessu var haldið áfram fram á tuttugustu öldina að því er segir í nýrri rannsókn sem verður birt í desemberútgáfu vísindaritsins Archaelogical Research in Asia.
Live Science segir að fornleifafræðingar hafi safnað saman gögnum á 250 stöðum í Asíu og hafi komist að því að tennur vantaði í 47 lík. Þetta voru karlar og konur og börn.
Segja vísindamennirnir að aðalástæðan fyrir því að fólk lét draga tennur úr sér, hafi verið í fegrunarskyni. Þeir byggja niðurstöðu sína á dæmum úr sögulegum textum og öðrum skjölum.
Segja vísindamennirnir að fólk hafi gert þetta til að andlit þeirra líktist ekki andliti dýra og til að draga fram ákveðna andlitsdrætti, sérstaklega til að heilla hitt kynið. Þeir telja einnig að þetta hafi verið „merki um hugrekki“.