KSBW segir að Rayne Beau hafi virst mjög hissa þegar þau komu í þjóðgarðinn og hafi hlaupið inn í trjáþykknið og týnst. Hjónin leituðu að honum daglega og skildu eftir mat og leikföng fyrir hann í þeirri von að hann rataði aftur til þeirra, en án árangurs.
„Við urðum að fara heim án hans,“ sagði Susanne í samtali við KSBW og bætti við að það hafi verið erfiður dagur því henni hafi fundist hún vera að yfirgefa hann.
Hjónin fóru aftur heim til Kaliforníu og veltu stöðugt fyrir sér hvað hefði orðið um köttinn. En þegar sumarið var að verða liðið fengu þau gleðifréttir. Hringt var í þau frá dýraverndarsamtökum sem sögðu að Rayne Beau hefði fundist í Roseville í Kaliforníu, í um 1.300 km fjarlægð frá Yellowstone.
Það kom sér vel að hann var örmerktur og áttu dýraverndarsamtökin ekki í neinum vandræðum með að finna út hverjir væru eigendur hans. Kona fann hann á ráfi á götu úti og kom honum í hendur samtakanna sem komu honum síðan í hendur eigendanna.
Ekki er vitað hvernig Rayne Beau ferðaðist alla þessa leið, hvort hann hafi virkilega gengið hana eða „fengið far“ með einhverjum.