Það var í febrúar í fyrra að kennari Brendans, hin 59 ára gamla Joan Naydich, gerði Nintendo Switch-tölvu hans upptæka þar sem hann var að nota hana á skólatíma.
Brendan reiddist mjög og réðst á kennarann með ítrekuðum höggum með þeim afleiðingum að fimm rifbein brotnuðu og hún hlaut heyrnarskaða. Joan gat illa varið sig í árásinni enda er Brendan 198 sentímetrar á hæð og yfir 120 kíló.
Málið hefur vakið talsverða athygli í ljósi þess að Brendan er greindur með einhverfu, ADHD, mótþróaröskun og það sem kallað er bráð árásarhneigð (e. intermittent explosive disorder). Þar að auki var Brendan aðeins sautján ára þegar árásin var framin.
Móðir hans, Leanne Depa, ættleiddi Brendan þegar hann var aðeins fimm mánaða gamall og grátbað hún dómarann um að sýna syni hennar miskunn áður en dómur var kveðinn upp. „Ég biðla til þín að leyfa honum að koma heim með mér í dag,“ sagði hún.
Leanne varð ekki að ósk sinni og þarf Brendan að vera á bak við lás og slá næstu fimm árin og á skilorði í 15 ár þar á eftir. Kennarinn, Joan, fór fram á það að Brendan fengi hámarksrefsingu fyrir brotið, 30 ára fangelsi. Dómari ákvað að fimm ára refsing væri hæfileg eftir að hafa hlustað meðal annars á vitnisburð móður Brendans og fólks sem hefur unnið með honum.
Lýsti Leanne því meðal annars við meðferð málsins að hún hefði upplýst skólann skýrt um greiningar hans og reiðivandamál hans.