Það er auðvelt að láta sér detta ýmis ógeðsleg og hættuleg efni í hug, öll höfum við heyrt um slík efni og jafnvel komist í návígi við einhver slík.
Hættulegasta efnið, sem myndast á náttúrulegan hátt, er bótúlín en það er Clostridium botulinum bakterían sem myndar það. Efnið lokar fyrir sendingar taugamerkja til vöðvanna sem veldur því að þeir lamast og fórnarlambið deyr.
Taugaeitrið VX, sem er efnavopn sem breski herinn þróaði, virkar á svipaðan hátt. Það lamar önundarfæri þeirra sem verða fyrir því og verður þeim þannig að bana.
Chlorine trifluoride, sem er ofurætandi litlaus gastegund, er svo hvarfagjarnt að það springur samstundis ef það kemst í snertingu við efni á borð við sand og vatn.
Það eru því mörg efni sem koma til greina, en hvaða efni er hættulegast?
Í umfjöllun Live Science segir að allt velti þetta á áhrifum efna og hversu stóran skammt þurfi til og auðvitað hvað fólk ætlar sér að gera við efnið.
Segir miðillinn að taugaeitur séu almennt talin vera eitruðustu vopnin því það þurfi svo lítið af þeim til að valda miklu tjóni á mannslíkamanum og jafnvel dauða. Til dæmis þurfi aðeins 10 milligrömm af VX til að bana manneskju á nokkrum mínútum.