Die Presse hefur eftir ónafngreindu vitni að konan hafi sagt: „Á ég að totta þig, svo þú verðir áhugasamur?“
Tveimur vikum síðar er hún sögð hafa sagt að „tott og bjór að kvöldi til og þá verður allt gott á nýjan leik“ að sögn vitna.
Konan er einnig sögð hafa kallað hermenn óviðeigandi nöfnum á borð við „Barbie“, „Rambo“, Wackeldackel“, „Hanni“ og Bigmouth. Kronen Zeitung segir að ástæðan fyrir uppnefnum sé að konan hafi ekki getað munað nöfn hermannanna.
Einnig kemur fram að eitt sinn hafi hermennirnir verið að þrífa skotvopn sín og hafi einn þeirra spurt konuna af hverju þeir þyrftu að þrífa þau. Hún er sögð hafa svarað: „Hreingerning gerir þig frjálsan“. Þetta er tilvísun í slagorð nasista „Arbeit macht frei“ (Vinnan gerir þig frjálsan). Slagorðið var hengt upp á inngangana í útrýmingarbúðir nasista.
Aganefnd hersins rannsakaði mál konunnar og komst að þeirri niðurstöðu að henni skuli ekki refsað. Ástæðan: Hermennirnir tóku ummæli hennar ekki alvarlega.
Konunni hafa verið gefin fyrirmæli um að hætta að uppnefna hermennina og að hún skuli nota rétt nöfn þeirra.
Hún vísar því á bug að hún hafi sagt „Hreingerning gerir þig frjálsan“ og sagði að helmingurinn af fjölskyldu hennar sé frá Póllandi og þvi myndi henni aldrei detta í hug að nota þetta slagorð.