Í miklu óveðri árið 1997 missti flutningaskip 62 gáma fyrir borð við Lands End. Í einum þeirra voru um 4,7 milljónir Legostykkja. Þar af voru 51.800 hákarlar.
Á þessum 27 árum hefur mikill fjöldi af þessum Legostykkjum fundist á ströndum og þeir hafa einnig komið í veiðarfæri. En þó ekki einn einasti af hákörlunum. En það breyttist í síðustu viku að því er BBC segir.
Þá fékk sjómaðurinn Richard West einn slíkan í veiðarfæri sín þegar hann var á veiðum 32 km sunnan við Penzance.
„Ég vissi um leið hvað þetta var, því ég átti Lego-hárkala í sjóræningjasetti þegar ég var lítill,“ sagði hann.
Samtökin „Lego Lost at Sea“, sem skrá upplýsingar um það sem hefur fundist úr gámnum, staðfestu að þetta væri fyrsti hákarlinn sem fundist hefur.