Það er ekki að ástæðulausu að Chen hefur fengið þetta viðurnefni því hann hefur að stóru leyti helgað líf sitt því að bjarga fólki í sjálfsvígshugleiðingum.
Chen er búsettur í borginni Nanjing í austurhluta Kína en borgin er sú áttunda fjölmennasta í landinu með rúmlega átta milljónir íbúa. Hann hefur beint sjónum sínum að fjölfarinni brú í borginni sem liggur yfir fljótið Yangtze sem er það lengsta í Asíu. Einstaklingar í sjálfsvígshugleiðingum hafa margir lagt leið sína að brúnni til að enda líf sitt og nýtur brúin þess vafasama heiðurs að vera sú mest notaða í heimi í þeim tilgangi.
South China Morning Post fjallaði um starf Chen sem hann hefur sinnt í sjálfboðastarfi allt frá árinu 2000. Honum telst til að á þessum 24 árum hafi hann bjargað hvorki fleiri né færri en 469 mannslífum með því að ræða við fólk og bjóða fram aðstoð sína. Í nokkur skipti hefur hann tekið þátt í að bjarga fólki sem hefur stokkið.
Í viðtalinu rifjar Chen upp að hann hafi gengið á brúnni dag einn árið 2000 þegar hann sá unga ráðalausa stúlku ráfa um. Hann sá strax að stúlkan var ekki í andlegu jafnvægi og gaf sig á tal við hana, meðal annars til að reyna að létta lund hennar. Stúlkan kvaðst vera í miklum peningavandræðum og ákvað Chen að kaupa fyrir hana vatn, mat og lestarmiða svo hún kæmist heim til sín.
Chen segist þarna hafa áttað sig á því í hvaða hugleiðingum unga konan var og um leið áttað sig á því að það væri hægt að bjarga fólki í sömu stöðu og hún var í.
Chen fer margar ferðir um brúnna á hverjum degi og auðþekkjanlegur á rauðum jakka sem hann klæðist með áletrun sem mætti þýða sem „Elskum lífið, hvern dag“. Og hann segist þekkja það á göngulagi fólks hvort það glími við mikla andlega vanlíðan.
„Fólk sem glímir við mikla innri togstreitu nær ekki að slaka á í líkamann. Líkaminn virðist þungur,“ segir hann. Hann hefur bjargað allskonar fólki sem glímir við mismunandi erfiðleika. Hann nefnir konu sem átti eiginmann sem hélt fram hjá henni og unga stúlku sem hafði komist inn í góðan háskóla en hafði ekki efni á skólagjöldunum. Brá hann á það ráð að setja af stað söfnun fyrir stúlkuna og varð það til þess að stúlkan komst inn í skólann.
Hann áttar sig líka á því – og það er kannski það mikilvægasta – að það er ekki bara nóg að bjarga fólki þegar örvæntingin er sem mest. Það þarf líka eftirfylgni til að fólk komist í gegnum erfiðleikana. Í sumum tilfellum hefur hann notað sitt eigið sparifé til að leigja herbergi handa fólki sem er í miklum vandræðum og greitt fyrir að koma því í viðeigandi úrræði.
Óhætt er að segja að saga Chens hafi vakið athygli og var til dæmis gerð heimildarmynd um starf hans sem kom út árið 2015. Myndin bar einmitt yfirskriftina Angel of Nanjing.
Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.