Útdrátturinn fór fram þann 20. ágúst síðastliðinn en Kyle og eiginkona hans, Jennifer Stuart-Flynn, voru þá nýkomin heim af fæðingardeildinni með nýfæddan son sinn.
Kyle keypti sér miða þegar hann fór út á flugvöll að sækja tengdamóður sína sem var á leið í heimsókn til að sjá nýja fjölskyldumeðliminn. „Ég greip miðann og setti hann á ísskápinn þegar ég kom heim,“ sagði Kyle í samtali við kanadíska fjölmiðla en hann og eiginkona hans eru búsett í Iroquois Falls í Ontario.
Daginn eftir að útdrátturinn fór fram heyrði Jennifer frá vini sínum að vinningsmiðinn hefði verið keyptur í Iroquois Falls. Dró hún upp símann sinn og skannaði miðann og kom þá hljóð í appinu sem gaf til kynna að stór vinningur væri á miðanum.
„Ég fékk áfall þannig að ég lokaði appinu og opnaði það aftur. Ég skannaði miðann aftur og aftur kom hljóðið. Það var þá sem ég kallaði á Kyle,“ segir Jennifer.
Hjónin eru meðvituð um að því fylgir ábyrgð að vinna svo stóra upphæð á einu bretti og þau ætla að vanda til verka þegar kemur að fjárútlátum. „Síðustu ár hafa verið erfið og allt sem við höfum gert hefur verið fyrir börnin okkar,“ segir hún.
Með sjö milljarða á milli handanna vilja hjónin einnig láta gott af sér leiða og ætlar Jennifer að kaupa íbúð handa systur sinni sem hefur staðið með henni í gegnum súrt og sætt. Þá segjast hjónin eiga þann draum að kaupa lítinn búgarð svo börnin þeirra geti alist upp í nágrenni við náttúruna og dýralíf.
Fyrir áhugasama þá voru vinningstölurnar 2, 11, 12, 21, 24, 38 og 39.