Maðurinn, Alexander Michael Dominic MacDonald, var á ferðalagi ásamt kærustu sinni þegar þau fóru að rífast. Starfsfólk um borð bað hann að lækka róminn og í fyrstu fór hann eftir fyrirmælum starfsfólks. Ekki leið á löngu þar til þau byrjuðu aftur að rífast og gekk starfsfólki ekkert að róa Alexander niður sem var sínu æstari en kærastan.
Parið var undir áhrifum þegar atvikið varð og lét Alexander starfsfólk vélarinnar heyra það, auk þess sem hann ýtti yfirflugfreyju vélarinnar.
Flugstjórinn taldi réttast að lenda vélinni í Maine til að tryggja öryggi allra um borð. Starfsfólki, með aðstoð tveggja farþega, tókst að lokum að yfirbuga manninn og var hann bundinn fastur við sætið sitt og handtekinn þegar vélin loksins lenti.
Í frétt Business Insider kemur fram að dómstóll hafi nú dæmt Alexander til að greiða United Airlines rúma 20 þúsund dollara, tæpar þrjár milljónir króna, í skaðabætur vegna atviksins. Þá hefur flugfélagið bannað honum og kærustu hans að stíga aftur um borð í vélar flugfélagsins.
Um leið og sektin hefur verið greidd verður Alexander svo vísað úr landi og hann sendur aftur til Bretlands.