Ótrúlegar myndir og myndbandsupptökur af neðansjávarlandslaginu sýna hversu magnað það er.
Rannsóknin fór fram frá 8. janúar til 11. febrúar og var notast við rannsóknarskipið Falkor. Aðaláherslan var á að rannsaka neðansjávarfjöll. Í heildina rannsökuðu vísindamennirnir 52.800 ferkílómetra svæði.
Fjögur áður óþekkt fjöll fundust. Það stærsta fékk nafnið Solito en það gnæfir 3.530 metra yfir sjávarbotninn og er því fjórum sinnum hætta en hæsta bygging heims, Burj Khalifa, sem er 828 metrar á hæð.
Live Science segir að vísindamennirnir hafi einnig notað neðansjávarvélmenni til að rannsaka hlíðar tíu fjalla. Við þá rannsókn hafi rúmlega 100 tegundir sjávardýra fundist og telji vísindamennirnir að þetta séu áður óþekktar tegundir.
Javies Sellanes, stjórnandi leiðangursins, sagði að árangurinn hafi farið fram úr björtustu vonum. Alltaf megi búast við að finna nýjar tegundir á afskekktum og lítt rannsökuðum svæðum en fjöldinn, sem fannst, sé miklu meiri en reiknað var með.