„Glaðningurinn“ er hinn 32 ára Brett Flores sem þvertekur fyrir að flytja út úr húsinu og skiptir þá engu að Landa-hjónin hafa keypt það. Ástæðan fyrir þvermóðsku hans er að í New York eru lög í gildi sem kveða á um að ekki sé hægt að henda „hústökufólki“ út ef það hefur búið í húsinu eða íbúðinni í meira en 30 daga. Af þeim sökum geta hjónin ekki losnað við Flores.
Hjónin segja að sú staða sem er uppi sé hrein martröð að sögn New York Post.
Þau greiddu tvær milljónir dollara fyrir húsið en það svarar til um 280 milljóna íslenskra króna.
Hjónin hafði hlakkað til að flytja inn í húsið og njóta síðustu æviáranna þar ásamt syni sínum, Alex, sem er þroskaheftur. Húsið er nærri heimili hins sonar þeirra og það skipti þau miklu máli því þá hefur Alex alltaf ættingja nálægt. „Ég vil bara vita að ég get dáið á morgun og Alex er nálægt bróður sínum,“ sagði Susana Landa í samtali við New York Post.
Brett Flores var ráðinn af fyrri eiganda hússins til að sinna starfi húsvarðar. Þegar eigandinn lést í ársbyrjun 2023 bjó Flores áfram í húsinu og segist hafa heimild til að búa þar. Hann hefur meira að segja leigt herbergi í húsinu út til karla, kvenna, para, fjölskyldna og námsmanna sem hafa leitað að leiguhúsnæði.
Landa-hjónin hafa reynt ýmisleg til að losna við Flores og hafa dregið hann fimm sinnum fyrir dóm en án þess að hafa náð þeim árangri sem þau vildu. En þau hafa ekki gefist upp og hafa nú stefnt honum fyrir sérstakan leigurétt í þeirri von að geta látið bera hann út.