Roger Harriott, 56 ára, myrti systur sína, Sandra Harriott, í „hrottalegri, grimmdarlegri og miskunnarlausri árás“ fyrir utan heimili hennar og áttræðrar móður þeirra systkina í Fartown í Huddersfield í West Yorkshire.
Aðeins rúmri viku fyrir morðið var 17 ára sonur Roger, Jovani Harriott, dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að hafa stungið Khayri McLean, 15 ára, til bana þegar hann var á leið heim úr skóla.
Metro segir að fyrir dómi hafi komið fram að samband Roger og Sandra hafi verið „eitrað“ og að þau hafi deilt um umönnun móður þeirra en hún var með Alzheimers.
Þremur vikum fyrir morðið var Roger handtekinn, grunaður um að hafa svikið fé út úr móður sinni. Hann sagði lögreglunni þá að Sandra myndi ekki fá peninga móður þeirra.
Samkvæmt því sem kom fram fyrir dómi þá hafði Sandra lifað í ótta við bróður sinn síðan 2020. Hann hafi veist að henni líkamlega og andlega, til dæmis hafi hann eitt sinn hrækt í andlit hennar og í annað sinn ekið glæfralega í átt að henni. Roger er sagður hafa haft á huga á hnífum lengi og hafi notað þá til að hóta ofbeldisverkum.
Sandra bar árásarhnapp á sér vegna hótana Roger og nálgunarbann var sett á hann í desember 2022. Mátti hann hvorki koma nálægt Sandra né heimili hennar. Þegar Sandra fór fram á nálgunarbannið skýrði hún frá því að Roger ætti vopn og að hún væri hrædd heima hjá sér því hann gæti birst á hverri stundu og að hún hafi áttað sig á hversu hættulegur hann væri.
Eftir fyrrgreinda handtöku vegna fjársvikanna var Roger látinn laus gegn tryggingu og þurfti að sæta ákveðnum ferðahömlum. En hvorki það né nálgunarbannið hélt aftur af honum að morgni 26. maí á síðasta ári. Þá var hann kominn að heimili Sandra fyrir klukkan 7. Hann beið eftir að hún kæmi út og þegar hún birtist hljóp hann úr bíl sínum að henni og hélt á samúræjasverði.
Á upptökum úr eftirlitsmyndavélum sést að hún reyndi að hlaupa undan honum en tókst það ekki og hjó hann hana átta sinnum með sverðinu. Hann hélt áfram að höggva hana og stinga eftir að hún féll til jarðar.
Hún engdist um á jörðinni og reyndi að verjast árásinni. Roger sneri aftur að bíl sínum en þegar hann var kominn að honum sneri hann við, gekk að Sandra og stakk hana í gegnum bringuna. Því næst ók hann á brott.
Roger játaði sök fyrir dómi og var dæmdur í ævilangt fangelsi. Hann getur sótt um reynslulausn eftir 23 ár.