Pilnic lét þessi orð falla í viðtali við CNBC í síðustu viku þar sem meðal annars var komið inn á hækkandi matvælaverð sem íbúar í flestum heimshlutum hafa fundið fyrir undanfarin misseri.
Pilnick sagði að morgunkorn væri sá flokkur matvæla sem er hvað viðráðanlegastur í verði og það hafi hann verið lengi. „Fyrir neytendur sem eru í þröngri stöðu er það [morgunkornið] álitlegur kostur,“ sagði hann.
Þegar hann var spurður hvort hann væri að mæla með því að fólk myndi til dæmis skipta út heitum kvöldmat fyrir morgunkorn svaraði hann játandi.
„Morgunkorn í kvöldmat er eitthvað sem er vinsælt í dag,“ sagði hann og bætti við að skál með morgunkorni og mjólk og ferskir ávextir með kostaði innan við einn dollara. „Við búumst við því að þetta haldi áfram þar sem neytendur eru undir talsverðri pressu.“
Pilnick, sem er með um 5 milljónir dollara, 700 milljónir króna, í árslaun hefur verið gagnrýndur talsvert fyrir þetta og þá hefur gagnrýnin líka snúið að stöðu mála hjá efnaminni fjölskyldum.
„Við lifum í samfélagi þar sem fjölskyldur eru hvattar til að velja morgunkorn í kvöldmat til að spara peninga. Sorglegt,“ sagði til dæmis einn.
Kellogg‘s, sem framleiðir meðal annars Corn Flakes, Froot Loops, Frosted Mini Wheats og Raisin Bran ásamt öðru morgunkorni, hefur markvisst reynt að auka sýnileika morgunkornsins á matseðlum Bandaríkjamanna.
Árið 2022 hóf fyrirtækið auglýsingaherferð þar sem neytendur voru hvattir til að gefa „kjúklingnum frí í kvöld“ og fá sér í staðinn gómsætt morgunkorn sem oftar en ekki er næringarsnautt og fullt af sykri.