Robert O‘Brien, sem er nú 45 ára, og Andrew Kelly, sem er nú 44 ára, voru í kjölfar handtökunnar ákærðir fyrir að hafa myrt Caroline og logið til um hvar þeir voru kvöldið sem hún var myrt. Þeir voru nýlega sakfelldir fyrir morðið af hæstarétti í Glasgow. Þeir voru báðir dæmdir í ævilangt fangelsi. O‘Brien getur í fyrsta lagi sótt um reynslulausn eftir 22 ár og Kelly eftir 18 ár.
Donna Marie Brand, sem er nú 44 ára, var einnig sakfelld fyrir morðið en dómur verður kveðinn upp yfir henni í mars því hún gat ekki verið viðstödd réttarhöldin vegna ástands hennar.
Sky News segir að við dómsuppkvaðninguna hafi dómarinn sagt að að erfitt væri að finna orð til að lýsa því hversu mikið níðingsverk þremenningarnir unnu en það sem hafi komið upp í hugann sé hrottalegt, hryllilegt og klikkað.
Lögreglan tók málið til rannsóknar á nýjan leik 2019 og yfirheyrði þá rúmlega 200 manns sem höfðu ekki verið yfirheyrð áður. Á grundvelli framburðar þeirra var fjarvistarsönnun þremenningana hrakin.
Fyrir dómi kom fram að Caroline hafi hitt kærasta sinn, O‘Brien, og Kelly og Brand á brú nærri ánni, þar sem lík hennar fannst. Þremenningarnir veittust að henni með öskrum og kýldu hana að sögn ítrekað og spörkuðu í höfuð hennar og líkama. Þau köstuðu einnig múrsteinum, eða einhverju álíka, í hana og hlaut hún alvarlega áverka á höfði og líkama.
Réttarmeinafræðingur sagði að Caroline hafi verið á lífi þegar henni var kastað í ána og hafi drukknun verið dánarorsök hennar.