fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Pressan

Kim Jong-un undirbýr sig undir að eyða Suður-Kóreu

Pressan
Þriðjudaginn 2. janúar 2024 18:00

Kim Jong-un sendir Rússum vopn og skotfæri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, flutti nýársávarpið á laugardaginn. Í því sagði hann langsoltinni og einangraðri þjóð sinni að óhjákvæmilegt sé að stríð brjótist út vegna aðgerða Bandaríkjanna og Suður-Kóreu.

Hann sagði einnig að það muni aldrei koma til þess að Kóreuríkin tvö sameinist og fyrirskipaði her landsins að undirbúa sig undir að gjöreyða Suður-Kóreu og hafði um leið í hótunum um að beita kjarnorkuvopnum gegn Bandaríkjunum.

Hann sagði að Norður-Kórea geti ekki horft fram hjá aukinni veru bandaríska hersins á Kóreuskaga. Hann sagði jafnframt að vegna aðgerða Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra þá muni stríð brjótast út á Kóreuskaga á hverri stundu og það muni Norður-Kóreumenn búa sig undir.

Hann hefur verið heldur vígreifur að undanförnu, væntanlega í tengslum við landsfund Verkamannaflokks landsins sem hófst á annan dag jóla. Verkamannaflokkurinn er eini stjórnmálaflokkur landsins og stýrir Kim-fjölskyldan flokknum auðvitað eins og öllu öðru í þessu harðlokaða einræðisríki.

Hann fyrirskipaði hergagnaframleiðendum að auka framleiðsluna vegna stríðsundirbúnings og það sama gildir um kjarnorkuvopnaáætlun landsins.

Norður-Kórea ætlar að senda þrjá njósnagervihnetti á braut um jörðina og smíða dróna til að nota í stríði. Norður-Kórea skaut fyrsta njósnahnetti sínum á loft í nóvember og virðast hafa komið sér upp langdrægum eldflaugum sem drífa til Bandaríkjanna.

Norður-Kórea hefur lengi verið áhyggjuefni margra varðandi stöðugleika í þessum heimshluta. Her landsins telur 1,2 milljónir manna og allt að 5 milljónir eru í varaliði hersins. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur beitt landið ýmsum refsiaðgerðum  til að reyna að fá Kim Jong-un til að hætta kjarnorkuvopnabrölti sínu en þetta hefur ekki skilað neinum árangri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann

Maðurinn sem sagði „þinn líkami, mitt val“ handtekinn – Spreyjaði piparúða á 57 ára gamla konu sem vildi bara ræða við hann
Pressan
Í gær

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar

Morðið á moldríka forstjóranum – Lögregla birtir nýjar myndir, fjölmiðlar misskildu borgarstjóra og Monopoly-seðlar vekja upp spurningar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessu máttu ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi

Þessu máttu ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Læknir segir að þess vegna eigi fólk að drekka heitt vatn á hverjum morgni

Læknir segir að þess vegna eigi fólk að drekka heitt vatn á hverjum morgni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli

Hann naut trausts æðstu ráðamanna en undir fáguðu yfirborðinu leyndist skrímsli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum

Þess vegna á nætursvefninn ekki að vera undir sjö klukkustundum
Pressan
Fyrir 3 dögum

105 ára segir þetta vera lykilinn að langlífi

105 ára segir þetta vera lykilinn að langlífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft áttu að skipta á rúminu þínu?

Hversu oft áttu að skipta á rúminu þínu?