Hún ætlaði að taka 20 dollara út, það svarar til um 3.000 íslenskra króna, en hraðbankinn var ekki á þeim buxunum að láta hana fá þessa upphæð án þess að tilkynna henni að hún myndi þá fara yfir úttektarmörk sín og þyrfti að greiða aukalega fyrir það.
Julia ákvað því að kanna stöðuna á reikningnum og brá mjög þegar hún sá að þar var tæplega einn milljarður dollara. Eða það hélt hún.
Hún fylltist að vonum ákveðnum efasemdum þegar hún sá þessa háu upphæð. 11alive.com segir að hún hafi sett sig í samband við bankann sem sagði henni að um öryggisráðstöfun væri að ræða og að þetta væri í raun ekki inneign hjá henni, heldur skuld! Hún skuldaði bankanum sem sagt tæpan milljarð dollara.
Þessi öryggisráðstöfun virkjaðist þegar Julia ætlaði að taka peninga út af reikningi látins eiginmanns síns. Innbyggt öryggiskerfi bankans tók þá við sér og setti reikninginn í mikinn mínus.