Tegundir manna hafa lengið verið tengdar eldi og sumar uppgötvanir vísindamanna benda til menn hafi náð tökum á eldi fyrir rúmlega 700.000 árum í Afríku og Miðausturlöndum og fyrir að minnsta kosti 400.000 árum síðan í Evrópu.
Nú segjast vísindamenn hafa fundið elstu þekktu ummerkin um notkun elds, sem fólk notaði til að safnast saman við og hita mat, í Evrópu.
„Þetta eru elstu þekktu ummerkin um eld, sem menn stjórnuðu, sem var notaður við eldamennsku og félagslegar athafnir,“ sagði Dr Clayton Magill, prófessor við Heriot-Watt háskólann, höfundur rannsóknarinnar.
The Guardian segir að hann hafi bent á að fyrri rannsóknir bendi til að fólk hafi „skipulagt“ elda í Evrópu fyrir 200.000 árum en það er byggt á því að eldarnir hafi verið kveiktir viljandi og notaðir í ákveðnum tilgangi. Nú hafi 50.000 ár bæst við þessa tölu.
Magill byggir niðurstöður sínar á vettvangsrannsóknum í Valdocarros II, sem er austan við Madrid. Ummerki þar sýni að eldar hafi logað þar og verið 280 til 350 gráðu heitir og benti Magill á að þetta sé passlegur hiti til eldamennsku.