fbpx
Laugardagur 03.júní 2023
Pressan

Dularfullt hvarf 30 tonna af ammoníumnítrati – Hægt að nota efnið til sprengjugerðar

Pressan
Mánudaginn 22. maí 2023 08:00

Það er hægt að búa til öfluga sprengju með öllu þessu magni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta hljómar hugsanlega eins og söguþráður úr einum þætti sjónvarpsþáttaraðarinnar Breaking Bad en svo er ekki, þetta er rammasta alvara. 30 tonn af ammoníumnítrati hurfu úr lest sem flutti efnið, og fleira, frá Wyoming til Kaliforníu.

Ammóníumnítrat er hættulegt efni í röngum höndum því það er hægt að nota það til að búa til sprengjur en almennt er það notað sem áburður.

Samkvæmt frétt Gizmodo þá hurfu tonnin 30 þegar lestinni var ekið um Mojaveeyðimörkina í suðurhluta Kaliforníu.

Það gerir málið enn undarlegra að innsiglið á lestarvagninum, sem efnið var í, var órofið þegar lestin kom á áfangastað. Dyno Nobel, sem er fyrirtækið sem sá um flutninginn, hefur beðið The Nuclear Regulatory Commission um að rannsaka málið en eitt af hlutverkum stofnunarinnar er að tryggja að geislavirk efni og önnur hættuleg efni séu notuð á öruggan og löglegan hátt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Betra seint en aldrei – Bókinni var skilað tæpum 100 árum of seint

Betra seint en aldrei – Bókinni var skilað tæpum 100 árum of seint
Pressan
Fyrir 2 dögum

Grunaður um morð og að hafa fryst líkið – Nú eru nýjar kærur komnar fram

Grunaður um morð og að hafa fryst líkið – Nú eru nýjar kærur komnar fram
Pressan
Fyrir 3 dögum

Krókódílabóndi tættur í sundur eftir að hann datt ofan í krókódílagryfju

Krókódílabóndi tættur í sundur eftir að hann datt ofan í krókódílagryfju
Pressan
Fyrir 3 dögum

Háhyrningar hafa sökkt 3 bátum í Evrópu og virðast vera að kenna öðrum að gera það sama – Af hverju?

Háhyrningar hafa sökkt 3 bátum í Evrópu og virðast vera að kenna öðrum að gera það sama – Af hverju?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hákarl beit fótlegg af konu

Hákarl beit fótlegg af konu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Úrskurðaður í gæsluvarðhald – Grunaður um nauðgun og að hafa myndað ofbeldisverkið

Úrskurðaður í gæsluvarðhald – Grunaður um nauðgun og að hafa myndað ofbeldisverkið