Bókin heitir „De revolutionibus orbium coelestium“ og var gefin út 1543. Hún ruddi brautina fyrir vísindamenn framtíðarinnar, þar á meðal Galileo Galilei, og var upphafið að byltingu í stjörnufræði.
Live Science segir að bókin hafi verið mjög umdeild á sínum tíma því hún hafi skapað algjörlega nýtt sólmiðjulíkan af alheiminum, þar sem sólin var miðpunktur sólkerfisins og pláneturnar voru á braut um hana. Þetta nýja líkan var algjörlega á skjön við skoðun kaþólsku kirkjunnar um að jörðin væri miðpunkturinn.
Bókin var prentuð í 500 eintökum en Vatíkanið bannaði bókina fljótt því hún gekk gegn skoðunum þess. Vitað er um 277 eintök sem enn eru til. Flest á söfnum, bókasöfnum og öðrum stofnunum. Nokkur eru í eigu einkasafnara og því er fyrirhuguð sala mjög sérstök. Árið 2008 var svipað eintak selt á uppboði fyrir 2,2 milljónir dollara.