fbpx
Föstudagur 09.júní 2023
Pressan

Segja að gefa eigi ungabörnum hnetusmjör eða hnetur til að draga úr ofnæmi

Pressan
Laugardaginn 1. apríl 2023 15:00

Og núna langar okkur í hnetusmjör.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er hægt að draga mjög úr tíðni hnetuofnæmis ef foreldrar gefa ungum börnum sínum hnetusmjör. Þetta á að gera þegar þau eru á aldrinum fjögurra til sex mánaða.

Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar að sögn Sky News sem segir að vísindamenn hafi fundið „glugga“ til að gefa börnum hnetur og draga þannig úr hættunni á að þau þrói með sér ofnæmi gegn þeim.

Þetta verður að gera þegar þau eru sex mánaða en hugsanlega fyrr, við fjögurra mánaða aldur hjá börnum sem eru með exem en það er áhættuþáttur varðandi ofnæmi.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er hægt að draga úr hnetuofnæmi um 77% með því að gefa öllum ungabörnum hnetusmjör við sex mánaða aldur.

Ef beðið er með að gefa þeim hnetusmjör eða aðrar vörur, sem innihalda hnetur, þar til þau eru eins árs, þá er aðeins hægt að lækka hlutfallið um 33%.

Flest börn þróa hnetuofnæmi með sér áður en þau ná eins árs aldri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Laug til að foreldrar sínir væru á lífi í fimmtán ár – Stal öllu þeirra fé og eyddi í furðulega minjagripi

Laug til að foreldrar sínir væru á lífi í fimmtán ár – Stal öllu þeirra fé og eyddi í furðulega minjagripi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Uppljóstrari úr röðum bandarísku leyniþjónustunnar varpar sprengju – „Við erum ekki ein“

Uppljóstrari úr röðum bandarísku leyniþjónustunnar varpar sprengju – „Við erum ekki ein“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Út á við var líf systranna fullkomið – Á bak við luktar dyr heimilisins ríkti hins vegar ógnarástand

Út á við var líf systranna fullkomið – Á bak við luktar dyr heimilisins ríkti hins vegar ógnarástand
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mexíkóska lögreglan fann 45 poka með líkamsleifum starfsmanna úthringivers

Mexíkóska lögreglan fann 45 poka með líkamsleifum starfsmanna úthringivers
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fjarpláneta á stærð við jörðina gæti verið þakin eldfjöllum

Fjarpláneta á stærð við jörðina gæti verið þakin eldfjöllum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eldgos í ofureldfjallinu í Yellowstone gætu verið margar stórar sprengingar

Eldgos í ofureldfjallinu í Yellowstone gætu verið margar stórar sprengingar