Lögreglunni hefur ekki orðið mikið ágengt við rannsókn málsins. Hún hefur ekki hugmynd um hver hinn látni er.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Þar biðlar hún til almennings um aðstoð og birtir teikningu af manninum í þeirri von að einhver geti borið kennsl á hann. Teikningin er byggð á greiningu á erfðamengi mannsins.
Talið er að hann hafi verið á aldrinum 40 til 65 ára og 166 til 175 cm á hæð. Hann notaði skó númer 36-38. Var ljós á hörund og brúneygður. Hann er sagður hafa verið skolhærður eða brúnhærður.