Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar að sögn CNN.
Margar stórborgir í Asíu standa við sjó. Alltaf var vitað að hætta væri á flóðum en samkvæmt því sem kemur fram í rannsókninni þá hefur hugsanlega verið vanmetið hversu illa hlutirnir geta farið.
Blanda af náttúrulegum og ófyrirsjáanlegum sveiflum á sjávarborðinu og væntanlegum afleiðingum loftslagsbreytinganna geta gert stórborgir í suðausturhluta Asíu að stað mikilla flóða.
Aizue Hu, einn af höfundum rannsóknarinnar, segir að við verðum að búa okkur undir hið versta.
Manila, höfuðborg Filippseyja, er ein þeirra borga sem eru í hættu. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar geta flóð orðið 18 sinnum algengari þar í framtíðinni en áður og það aðeins af völdum loftslagsbreytinganna.
Ef sveiflur á sjávarborðinu eru teknar með í reikninginn, þá hækkar talan úr 18 sinnum algengari í 96 sinnum algengari.