Þetta kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins þar sem segir að þetta sé í fyrsta sinn sem heil beinagrind af tyrannosaurus rex sé boðin upp í Evrópu og aðeins í þriðja sinn á heimsvísu.
Beinagrindin hefur fengið nafnið Trinity og verður hún boðin upp í Zürich þann 18. apríl næstkomandi.
Beinagrindin er 11,6 metrar á lengd og 3,9 metrar á hæð.
Verðmæti beinagrindarinnar er talið vera á bilinu sem nemur um 800 milljónum íslenskra króna til 1,2 milljarða.
Uppboðshúsið segir að Trinity sé einn flottasta beinagrindin af t-rex sem til er. Hún hafi varðveist vel og hafi verið komið í toppstand af sérfræðingum.
Hún var grafin upp á árunum 2008 til 2013 í Montana og Wyoming í Bandaríkjunum.