fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Pressan

Nýjar vendingar í máli móðurinnar sem hvarf – Telur þriðja aðila hafa komið við sögu

Pressan
Miðvikudaginn 8. febrúar 2023 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórnandi sérhæfðs leitarteymis sem undanfarin sólarhring hefur fínkembt ánna Wyre í Lancashire-sýslu í Norðvestur-Englandi segist fullviss um að það að Nicola Bulley, sem hvarf sporlaust fyrir tólf dögum. hafi ekki drukknað í ánni eins og kenning lögreglunnar hefur gengið út á. Þetta kemur fram í umfjöllun Daily Mail.

Eins og komið hefur fram hvarf Bulley, sem er móðir tveggja stúlka, níu og sex ára, ásamt sambýlismanni sínum Paul Ansell, skyndilega þegar hún var í morgungöngu með hundinn sinn, Willow, við árbakkann í bænum  St Michael’s on Wyre í Lancashire-sýslu í Norðvestur-Englandi þann 27. janúar síðastliðinn. Það eina sem fannst var síminn hennar á bekk við ánna, sem enn var tengdur inn á vinnufjarfund á Teams, sem og hundurinn skammt frá.

Hefðu fundið lík Bulley hefði hún drukknað

Kenning lögreglu hefur gengið út á að Bulley hafi einhvern veginn fallið í ánna og drukknað, þrátt fyrir að hún hafi verið öflug sundkona og áin grunn og straumurinn ekki þungur. Peter Faulding, sem stjórnar leitarteymi sem sérhæfir sig í að finna lík fólks í ám og vötnum, hefur undanfarinn sólarhring stýrt leit í ánni með rándýrum sónartækjum.

Hann fullyrðir í samtali við Daily Mail að ef lík Bulley væri í ánni þá væri það fundið og telur afar ólíklegt að hún hafi drukknað í ánni. Þá gefur hann lítið fyrir þær vangaveltur að áin hafi hrifið líkama Bulley með sér og fleytt henni til sjávar. Hann hafi 20 ára reynslu af leitum sem þessum og sé þess fullviss að líkami Bulley hafi ekki færst langt niður eftir ánni, hafi hún á annað borð drukknað í henni. „Það er mjög lítill straumur hér og samkvæmt minni reynslu færast lík lítið úr stað í aðstæðum sem þessum,“ segir Faulding..

Peter Faulding

 

Greinir hann Daily Mail frá því að hann hafi skapað sér óvild hjá lögreglunni með því að segjast fullviss um að þriðji aðili hafi komið að hvarfi hennar, sem vakið hefur þjóðarathygli á Bretlandseyjum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
Pressan
Í gær

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra

Elon Musk sakar Ástrali um ritskoðun: „Hrokafullur milljarðamæringur,“ segir ráðherra
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“

„Ósigrandi“ stúlknalið fór ósigrað í gegnum tímabilið í „strákadeildinni“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu

Airbnb-húsið frá helvíti – Móðir og fjögur börn í stórhættu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig

Gerði óhugnanlega uppgötvun heima hjá sér – Síðan hefur ráðgátan bara undið upp á sig
FréttirPressan
Fyrir 3 dögum

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?

Dularfulla skáldsagan sem spáði fyrir um Titanic-slysið – Var höfundurinn geðveikur eða skyggn?