fbpx
Föstudagur 08.desember 2023
Pressan

Eftir 40 ár – Nú gerist það loksins

Pressan
Mánudaginn 20. nóvember 2023 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 1. desember næstkomandi verður hátíðleg athöfn í Hollywood, nánar tiltekið á Hollywood Walk of Fame þar sem Macaulay Culkin, sem er líklega best þekktur fyrir leik sinn í Aleinn heima, fær stjörnu á þessari heimsfrægu gangstétt.

Aleinn heima, þá sérstaklega fyrstu tvær myndirnar, eru af mörgum taldar vera meðal sannkallaðra klassískra jólamynda. Aðrir eru þessu þó ekki sammála en hvað sem því líður þá nutu myndirnar mikilla vinsælda á sínum tíma og hafa gert allar götur síðan. Margir geta ekki hugsað sér að fara inn í jólin án þess að horfa á þær.

Myndirnar urðu fleiri en tvær en óhætt er að segja að þær sem á eftir komu hafi ekki náð sömu vinsældum og þær tvær fyrstu og voru nú eiginlega mun lakari.

Culkin mun halda upp á 40 ára leikaraafmæli sitt á næsta ári. Hann var aðeins fjögurra ára þegar hann lék í fyrstu kvikmyndinni sinni. Það var árið 1984 en þá lék hann í „Rocket Gibraltar“ þar sem hann lék barnabarn Burt Lancaster.

En athyglin fór fyrst að beinast að honum af krafti þegar hann lék í kvikmyndinni „Uncle Buck“. Þar lék hann frænda hins vinsæla gamanmyndaleikara John Candy. Í kjölfarið fylgdu Aleinn heima 1 og 2 og þar á eftir „My Girl“. Eftir það staðnaði ferillinn og vandamál í einkalífinu urðu allsráðandi.

Stjarna Culkin í gangstéttinni verður þar í góðum félagsskap 2.874 annarra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Fann óboðinn gest í jólatrénu sínu – „Ég veit ekki hvað ég á að gera“

Fann óboðinn gest í jólatrénu sínu – „Ég veit ekki hvað ég á að gera“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fulltrúi Bandaríkjanna sakaður um að prumpa á loftlagsráðstefnu – „Hann ætti að missa vinnuna“

Fulltrúi Bandaríkjanna sakaður um að prumpa á loftlagsráðstefnu – „Hann ætti að missa vinnuna“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Kennsl borin á lík unglings sem fannst árið 1974 – Talinn fórnarlamb alræmds fjöldamorðingja

Kennsl borin á lík unglings sem fannst árið 1974 – Talinn fórnarlamb alræmds fjöldamorðingja
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þetta er leyndarmálið á bak við besta kynlífið – Víðsfjarri því sem þú heldur

Þetta er leyndarmálið á bak við besta kynlífið – Víðsfjarri því sem þú heldur
Pressan
Fyrir 5 dögum

Uppgötvuðu „sjófjall“ tvisvar sinnum hærra en hæsta bygging heims

Uppgötvuðu „sjófjall“ tvisvar sinnum hærra en hæsta bygging heims
Pressan
Fyrir 5 dögum

Hélt draumabrúðkaupið með KFC þema og steiktum kjúklingavendi

Hélt draumabrúðkaupið með KFC þema og steiktum kjúklingavendi