Hamas-samtökin starfa aðallega á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna og eru samtökin í meirihluta á þinginu.
New York Post segir frá því að eignir þriggja hæst settu meðlimir samtakanna séu metnar á ellefu milljarða Bandaríkjadala, rúma 1.500 milljarða króna. Þeir lifa allir í útlegð í smáríkinu Katar sem er eitt ríkasta land heims. Þar lifa þeir í góðu skjóli frá átökunum við botn Miðjarðarhafs.
New York Post segir frá því að þessu vilji Andy Ogles, þingmaður Repúblikana frá Tennessee, breyta. Vill hann að Bandaríkin láti af hernaðarlegum stuðningi við Katar nema yfirvöld þar sparki leiðtogum Hamas úr landi.
Hamas-samtökin reka skrifstofu í Doha, höfuðborg Katar, og þar lifa leiðtogar samtakanna; Ismail Haniyeh, Moussa Abu Marzuk og Khaled Mashal góðu lífi. Myndir af þeim um borð í einkaþotum hafa meðal annars birst en á sama tíma býr meirihluti íbúa Gaza við afar bágbornar aðstæður.
Haniyeh, sem er 61 árs, er leiðtogi hins pólitíska arms Hamas-samtakanna en hann var forsætisráðherra Palestínu í kjölfar kosninganna 2006. Á undanförnum árum hefur hann dvalið bæði í Katar og Tyrklandi. Þessi þrettán barna faðir er sagður vera metinn á um fjóra milljarða Bandaríkjadala, rúma 560 milljarða króna.
Í frétt New York Post kemur fram að Haniyeh hafi verið myndaður ásamt tveimur sonum sínum þar sem þeir lifa góðu lífi á glæsihótelum í Katar og Tyrklandi. Annar þeirra, Maaz Haniyeh, er stundum kallaður fasteignakóngur Gaza-svæðisins vegna eignarhalds hans á fasteignum á svæðinu. Maaz þessi er sagður lifa hálfgerðum glaumgosalífsstíl í Tyrklandi og fékk hann tyrkneskt vegabréf fyrir á þessu ári. Ismail faðir hans er einnig sagður vera með tyrkneskt vegabréf.
Í síðustu viku ferðaðist Ismail til Írans þar sem hann fundaði með Ayatollah Ali Khamenei, æðstaklerki Írans. Íran hefur lengi stutt við bakið á Hamas-samtökunum.
Abu Marzak er annar hátt settur meðlimur samtakanna en hann er sagður vera yfirmaður alþjóðlegra samskipta þeirra. Eignir hans eru metnar á þrjá milljarða Bandaríkjadala, rúma 400 milljarða króna. Marzak, sem er 72 ára, stundaði háskólanám í Bandaríkjunum og var hann handtekinn þar í landi árið 1995 eftir að nafn hans kom upp í gagnagrunni yfir grunaða hryðjuverkamenn.
Þriðji meðlimur samtakanna sem lifir í útlegð, Khaled Mashal, er metinn á um fimm milljarða Bandaríkjadala. Hann hefur eins og hinir dvalið bæði í Katar og í Tyrklandi og hafa myndir af honum í vellystingum verið birtar opinberlega.
Í umfjöllun New York Post kemur fram að það sé von yfirvalda í Katar að Hamas-samtökin verði ábyrg stjórnmálasamtök. Þannig hafi Katarar í raun réttlætt veru leiðtoganna í landinu. Segir New York Post að Hamas njóti fjárstuðnings frá katarska ríkinu og fái allt að 480 milljónir dala á ári hverju. Með þessum fjármunum, meðal annars, geti Hamas-samtökin haldið völdum í Palestínu.
Samtökin fá fjármuni annars staðar frá einnig, til dæmis frá Sameinuðu þjóðunum, og er bent á það í umfjölluninni að Hamas hafi fengið nærri 400 milljónir dala frá þeim á síðustu tveimur árum.