BBC skýrir frá þessu og segir að maðurinn hafi ráðist á konuna af því að hún var stutthærð. Hann taldi hana því vera femínista.
Á upptöku úr eftirlitsmyndavél sést maðurinn, sem er sagður vera rétt rúmlega tvítugur, ganga inn í verslunina og nær samstundis ráðast á konuna, sem er um tvítugt. Hann sló hana og sparkaði í hana.
Viðskiptavinur, kona, reyndi að stöðva manninn en hann réðst þá á hana með stól að vopni.
Þegar lögreglan hafði handtekið manninn og spurði hann af hverju hann hefði ráðist á konuna var svarið: „Þar sem þú ert með stutt hár, hlýtur þú að vera femínisti. Ég er karlremba og tel að femínistar eigi skilið að ráðist sé á þá.“
Konan meiddist alvarlega á augum og liðböndum.
BBC segir að töluvert hafi verið um árásir á stutthærðar konur en „and-femínistabylgja“ gengur nú yfir Suður-Kóreu. Árásarmennirnir eru aðallega ungir að árum og telja sig sæta mismunun af hálfu femínista því af einhverri ástæðu telja þeir að það að vera femínisti sé það sama og að hata karla.