Ofbeldisaldan sem gengið hefur yfir Mexíkó á undanförnum árum hefur leitt af sér samtökin Madres Buscadoras.
Um er að ræða samtök mæðra sem leita að börnum sínum sem horfið hafa sporlaust og grunur leikur á að glæpaklíkur hafi komið fyrir kattarnef.
Á dögunum voru samtökin við leit í Jalisco og er óhætt að segja að fulltrúar hópsins hafi gert óhugnanlega uppgötvun. Í miðjum óbyggðum gengu mæðurnar fram á líkbrennsluofn sem grunur leikur á að hafi verið notaður til að brenna lík og losna þannig við þau. Var ofninn enn heitur þegar lögregla kom á vettvang.
„Þetta var eins og grafreitur og við getum ekki ímyndað okkur hversu mörg lík hafa verið brennd þarna. Það voru bein út um allt,“ segir fulltrúi samtakanna við mexíkóska fjölmiðla sem Daily Star vitnar til.
Rannsókn á málinu stendur yfir en grunur leikur á að ónefnd glæpasamtök hafi notað staðinn til að losa sig við lík. Ljóst er að mikil vinna er framundan við að bera kennsl á beinin.