fbpx
Mánudagur 11.desember 2023
Pressan

Verkfærið sem nær allir netnotendur nota – 99.000 á sekúndu

Pressan
Mánudaginn 25. september 2023 19:00

Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um þessar mundir eru 25 ár síðan tveir ungir bandarískir háskólanemar bjuggu til verkfæri sem nær allir netnotendur nota. Þetta var hluti af prófverkefni þeirra og líklega óraði þá ekki fyrir áhrifum þess sem þeir gerðu.

Það sem þeir bjuggu til er leitarvélin Google. Daglegur fjöldi leita á Google er nú um 3,5 milljarðar eða 99.000 á sekúndu. Engin furða að þetta sé stærsta leitarvél heims.

Það voru þeir Lawrence Edward Page (Larry Page) og Sergei Mikhailovit Brin (Sergei Brin) sem lögðu grunninn að Google. Þeir voru báðir nemendur við Harvard háskólann í Cambridge í Massachusetts. Þeir fengu það verkefni að þróa stafrænan vettvang sem væri hægt að nota til að leita í þeim mikla fjölda upplýsinga sem eru á Internetinu.

Það tókst þeim svo sannarlega og síðan hefur Google svo sannarlega haslað sér völl í netheimum. Samkvæmt nýjustu tölum frá Google þá fær leitarvélin 89,3 milljarða heimsókna í hverjum mánuði. Þetta er töluverð aukning frá 1998 en þá voru heimsóknirnar um 300.000 á mánuði.

Fyrsta skrefið í þróun Google var leitarvélin Backrub en eftir því sem hinir miklu  möguleikar hennar urðu greinilegir breyttu Page og Brin nafninu í Google. Nafnið er dregið af orðinu googol sem er táknið fyrir 1 með 100 núllum. Það vísar til hins gríðarlega magns upplýsinga sem eru á Internetinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Dæmd til að vinna á skyndibitastað

Dæmd til að vinna á skyndibitastað
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sonur Bandaríkjaforseta á yfir höfði sér 17 ára fangelsi

Sonur Bandaríkjaforseta á yfir höfði sér 17 ára fangelsi
Pressan
Fyrir 5 dögum

„Maðurinn minn vill kynlíf nokkrum sinnum á dag“ – „Þetta er að verða vandamál“

„Maðurinn minn vill kynlíf nokkrum sinnum á dag“ – „Þetta er að verða vandamál“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þau voru 26 á aldrinum fimm til 14 ára – Rænd og grafin lifandi – „Þú gefst ekki upp. Þú heldur áfram að grafa“

Þau voru 26 á aldrinum fimm til 14 ára – Rænd og grafin lifandi – „Þú gefst ekki upp. Þú heldur áfram að grafa“