Yue „Emily“ Yu, húðsjúkdómalæknir búsett í Kaliforníu, hefur verið ákærð fyrir að eitra fyrir eiginmanni sínum. Er hún sögð hafa sett stíflueyði í te hans.
Hún er sögð hafa gert þetta margoft. Hún er ákærð fyrir að hafa eitrað fyrir honum þrisvar sinnum og að hafa lamið hann einu sinni. Hún er sögð hafa sett Drano stíflueyði í te hans. Hann fékk magasár eftir að hafa drukkið teið.
KABC-TV segir að eiginmaðurinn, Jack Chen, sem er einnig læknir, hafi tekið eftir breyttu bragði á teinu sínu í apríl á síðasta ári. Hann áttaði sig ekki á af hverju bragðið hefði breyst og setti því upp eftirlitsmyndavélar í eldhúsinu á heimili þeirra hjóna. Á upptöku úr þeim sést Yu, sem er 45 ára, nokkrum sinnum hella upp á te fyrir hann og setja stíflueyði út í það.
Chen afhenti lögreglunni í Irvine þessar upptöku og kom hún þeim í hendur alríkislögreglunnar FBI. FBI staðfesti að stíflueyði hefði verið bætt út í teið.
Chen hefur sótt um skilnað frá Yu og fullt forræði yfir tveimur börnum þeirra hjóna. Yu gengur laus eftir að hafa greitt uppsetta tryggingu upp á 30.000 dollara.
Málið verður tekið fyrir dóm 18. apríl.