Samkvæmt breskum lögum þá getur innanríkisráðuneytið veitt börum heimild til að lengja opnunartíma sinn við sérstök tilefni og verða það að vera stóratburðir.
Eftir nokkurra vikna viðræður samtaka veitinga- og gistihúsa náðist samkomulag um þetta og segir Metro að meirihluti almennings, eða 77%, styðji þessa ákvörðun.
Bretar geta því fengið sér aðeins í tána þessa stóru helgi um leið og þeir fagna krýningu Karls.