fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Pressan

Stefna yfirvöldum vegna blekkinga við bólusetningar barna

Pressan
Sunnudaginn 5. mars 2023 13:30

Svo virðist sem ekki hafi allt verið með felldu við bólusetningu barnanna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tugir fjölskyldna í Baskalandi á Spáni hafa ákveðið að höfða mál gegn yfirvöldum eftir að hjúkrunarfræðingur var sökuð um að hafa haft rangt við varðandi bólusetningar barna.

Yfirvöld hófu rannsókn á málinu í haust eftir að foreldrar byrjuðu opinberlega að láta í ljós áhyggjur sínar af tilraunum hjúkrunarfræðingsins til að fá þá til að láta ekki bólusetja börn sín. Hjúkrunarfræðingurinn starfaði á heilsugæslustöð í Santurtzi, sem er um 12 km frá Bilbao. Foreldrarnir létu einnig í ljós áhyggjur af hvernig hjúkrunarfræðingurinn bar sig að við að sprauta börnin.

The Guardian segir að málið hafi komist í fréttirnar nýlega þegar 42 fjölskyldur höfðuðu mál þar sem hjúkrunarfræðingnum er gefið að sök að hafa falsað skjöl og að hafa misfarið með opinbert fé.

„Allar þessar fjölskyldur hafa verið bólusettar, eða ekki, af þessum hjúkrunarfræðingi,“ sagði Aitzol Asla, lögmaður fjölskyldnanna. „Sumir tóku eftir að hún bar sig undarlega að við bólusetningarnar. Hún sprautaði mjög hratt og svo var eins og hún henti öllu glasinu í ruslið,“ sagði Asla.

Hjúkrunarfræðingurinn hafði það verkefni að bólusetja börn gegn sýkingum á borð við heilahimnubólgu og lifrarbólgu B.

Eftir kvartanir foreldra í september, gerðu embættismenn ónæmispróf á um 50 börnum sem höfðu verið bólusett á heilsugæslustöðinni. Þeim var skipt í tvo hópa, eftir því hvaða hjúkrunarfræðingur hafði bólusett þau.

Í ljós kom að börnin í öðrum hópnum voru ekki með gott ónæmi. Þeim var boðið upp á almennilega bólusetningu og það sama á við um 400 börn til viðbótar sem talið er að umræddur hjúkrunarfræðingur hafi annast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“

Stefnulýsing Mangione birt – „Ég biðst afsökunar á þeim erfiðleikum og þjáningum sem ég hef valdið en þetta þurfti að gerast“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Afbrotafræðinemi myrti hugsanlega konu til að „sjá hvernig það væri“

Afbrotafræðinemi myrti hugsanlega konu til að „sjá hvernig það væri“
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Undraland vetrarins“ sagt vera hrein blekking

„Undraland vetrarins“ sagt vera hrein blekking
Pressan
Fyrir 4 dögum

Benjamin Netanyahu í vitnastúkunni í eigin spillingarmáli – „Ég hef beðið þessarar stundar í átta ár“

Benjamin Netanyahu í vitnastúkunni í eigin spillingarmáli – „Ég hef beðið þessarar stundar í átta ár“
Pressan
Fyrir 4 dögum

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“

Lét mömmu sína hringja í þingmenn svo hann geti orðið varnarmálaráðherra – „Hann hljóp heim og klagaði í mömmu“