Þegar vagninn, sem ekur frá Odder til Hornslet, kom til Veri Centret í Risskov ók vagnstjórinn skyndilega út í vegkantinn og kom síðan með óvenjulega tilkynningu til farþeganna.
„Ungi maðurinn tilkynnti að konan hans væri komin með hríðir. Hann baðst afsökunar á að geta ekki ekið lengra og steig síðan út úr vagninum,“ sagði Aydin í samtali við TV2.
Tilkynningin fékk farþegana tuttugu í vagninum til hrópa til hamingju og klappa fyrir unga og smávegis ringlaða unga manninum, sem hafði skyndilega fengið allt annað að hugsa um en að halda áætlun.
„Hann vafraði um fyrir framan og aftan vagninn,“ sagði Aydin.
Eftir um tíu mínútur barst síðan aðstoð. Nýr bílstjóri kom akandi á fólksbíl og skipti við vagnstjórann unga sem gat sett stefnuna beint til konu sinnar til að vera viðstaddur hina stóru stund.
Nýi vagnstjórinn tók stefnuna til Hornslet en eitt vandamál til var þó við að etja. Nýi vagnstjórinn hafði flýtt sér svo mikið að hann hafði ekki náð að borða morgunmat.
Þegar vagninn kom til Løgten og stoppaði þar í smá stund flýtti Aydin sér í bakaríið og keypti smá mat fyrir vagnstjórann og lét hann fá þegar vagninn kom aftur á stoppistöðina.