Madeleine hvarf úr sumarleyfisíbúð, sem foreldrar hennar voru með í Algarve í Portúgal, í byrjun maí 2007. Hún hefur ekki fundist þrátt fyrir mikla rannsóknarvinnu bresku lögreglunnar sem og þeirrar portúgölsku.
Daily Star segir að konan hafi nýlega birt færslu á Instagramreikningnum @iammadeleinemccann þar sem hún segir að fyrir nokkrum mánuðum hafi hún byrjað að hugleiða hvort verið gæti að hún sé Madeleine McCann. „Ég heyrði þetta hjá ömmu minni,“ segir hún.
Konan segist vera 21 árs en telji að það geti verið rangt og að hún sé 19 ára eins og Madeleine væri nú ef hún er á lífi.
Hún segist vera með freknur á fótleggjunum og blett í auganu á sama stað og Madeleine og birti samsettu myndina hér fyrir neðan af Madeileine og sér þegar hún var yngri.
Konan segist vera svo sannfærð um að hún sé Madeleine að hún segist vilja fara í DNA-próf til að sanna þessa staðhæfingu sína. „Hjálpið mér, ég verð að tala við Kate og Gerry McCann. Ég held að ég sé Madeleine. Ég þarf að fara í DNA-próf,“ segir hún á Instagram.
Konan kemur ekki fram undir nafni en líklega má segja að rök hennar, fyrir að hún sé Madeleine, séu ansi veik.