Að öllu óbreyttu verður slökkt á tækjunum, sem halda hinum tólf ára gamla breska Archie Batterbee á lífi, klukkan fjórtán í fyrramálið á staðartíma.
Archie hefur legið meðvitundarlaus á sjúkrahúsi síðan í aprílmánuði eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum og varanlegum heilaskaða.
Til stóð að slökkva á tækjunum klukkan tvö í dag eftir að foreldrarnir töpuð málið sínu en á síðustu stundu var þeim veittur frestur út daginn í dag.
Foreldrar Archie eru afar ósátt við niðurstöðu yfirvalda og krefjast þess að fá lengri tíma til að halda áfram baráttu sinni til að hindra að slökkt verði á tækjunum. Læknar hafa staðfest að Archie sé heiladauður og því sé hagsmunum hans best borgið ef tækin sem halda í honum lífi verði tekin úr sambandi.
Þau eru ennfremur afar ósátt að þeim sé synjað að taka hann af spítalanum og þá annaðhvort á líknardeild eða heim til fjölskyldunnar.
Sjá einnig: Áfrýjun foreldra Archie Battersbee synjað – Verður tekinn úr sambandi á morgun
Búið var að ákveða að slökkt yrði á tækjunum kl. 11 í gær á breskum tíma í kjölfar þess að foreldrarnir höfðu tapað máli gegn spítalanum sem annast son þeirra. Aðeins nokkrum mínútum áður slökkva átti á tækjunum var þeim tilkynnt að þau gætu lagt fram frekari gögn hjá sérstakri nefnd en þau þurfa að berast fyrir klukkan 9 í fyrramálið, sem lögmenn segja þeirra segja ekki gefa nægan tíma til undirbúnings.
Archie fannst meðvitundarlaus á heimili móður sinnar, Holly Dance, þann 7. apríl síðastliðinn. Talið er að hann hafi verið að taka þátt í áskorun á samfélagsmiðlum, The Blackout Challenge, sem gengur út á það að þátttakendur setja snæri um háls sinn og reyna að missa meðvitund í stutta stund.