fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Pressan

Er Josef síðasti nasistinn sem dæmdur er fyrir stríðsglæpi?

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Miðvikudaginn 17. ágúst 2022 19:00

Úr Sachsenhausen útrýmingarbúðunum. Mynd/Wikpedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í júní síðastliðin var 101 árs gamall Þjóðverji dæmdur fyrir stríðsglæpi í seinni heimsstyrjöldinni. Það er talið hann sé að öllum líkindum síðasti nasistinn sem réttað er yfir fyrir voðaverk í útrýmingarbúðunum.

Engu skipti þótt 77 ár séu liðin frá glæpunum, þeir fyrnast aldrei samkvæmt þýskum lögum.

Josef Schütz var dæmdur fyrir morð á rúmlega 3000 manns þegar hann starfaði sem vörður í Sachsenhausen búðunum í þrjú ár.

Josef Schütz fyrir dómi.

Hryllingurinn í Sachsenhausen

Yfir 200 þúsund manns fóru í gegnum Sachsenhausen. Um var að ræða pólitíska andstæðinga nasista, gyðinga, samkynhneigða, stríðsfanga og Rómafólk.

Tugir þúsunda þeirra dóu í gasklefum, voru teknir af lífi af aftökusveitum, létust við skelfilegar ,,læknisfræðilegar” tilraunir eða voru einfaldlega handahófskennt skotnir eða barðir til bana af vörðum búðanna.

Josef heldur því staðfastlega fram að um rangan mann væri að ræða, hann hafi aldrei stigið inn í útrýmingarbúðir, hvað þá starfað í þeim. Þeirri fullyrðingu var vísa á bug af dómstól sem taldi meira en nægar sannanir fyrir glæpum hans.

Sannað þótti að Josef stóð bæði fyrir aftökum á sovéskum stríðsföngum svo og fjöldamorðum í gasklefum búðanna. Alls var hann dæmdur fyrir 3.518 morð og   morðtilraunir auk þess að vera meðsekur í morðum annarra starfsmanna búðanna.

Hann var dæmdur til fimm ára fangelsisvistar.

Mynd úr Sachenhausen.

Þegar dómur var felldur sagði dómari að ekki bara hefði Josef sjálfur framið morð heldur hefði hann hvatt aðra verði til þess sama. Það eitt og sér væri ófyrirgefanlegt.

Josef heldur því enn staðfastlega fram að ásakanir á hendur honum séu helber lygi. Hann segist ekki einu sinni skilja hvað hann eigi að hafa gert og sé allt ferlið reyndar óskiljanlegt.

Enn er leitað

Þjóðverjar eru enn með deild innan hins opinbera sem leitar nasista sem frömdu grimmdarverk í heimsstyrjöldinni. Fjölgað hefur verið í deildinni undanfarin ár í þeirri von um að finna fleiri stríðsglæpamenn áður en það er seint.

Árið 2016 staðfesti hæstiréttur dóm yfir Oskar Gröning, öðrum nasista sem rannsóknarmenn deildarinnar fundu. Hann hefur verið nefndur ,,bókhaldari” Auschwitz útrýmingarbúnnaða og sem slíkur meðsekur um morð á 300 þúsund föngum, þótt svo að aldrei hafi sannast að hann hafi sjálfur framið morð.

Þá var talið hugsanlegt að Oskar yrði sá síðast sem dæmdur væri en það reyndist ekki rétt.

Fengu loks gögnin

Rannsóknarmenn deildarinnar fundu Josef árið 2018 eftir að hafa fengið loks afhent gögn frá Rússlandi. Um er að ræða skýrslur sem sovéskir hermenn gerðu upptækar við frelsun búðanna og tóku með til Sovétríkjanna sálugu.

Í skýrslunum kemur fram að Josef gekk í SS sveitir nasista tvítugur að aldri. Hann starfaði sem fangavörður í búðunum frá 1942 til 1945 og þótti standa sig það vel að hann fékk titilinn Rottenführer innan SS.

Náði ekki að sjá réttlætið fram að ganga

Josef gat ekki með neinu móti skýrt skýrslurnar né þær nákvæmu upplýsingarnar sem þar var að finna um heima. Í skýrslunum var meira að segja ljósmynd af honum.

Sjálfur sagðist hann hafa starfað á bóndabæ öll stríðsárin og aldrei á ævi sinni hafa klæðst einkennisbúningi, hvað þá verið í sveitum SS.

Leon Schwarzbaum var sá eini í fjölskyldunni sem lifði af búðirnar.

Einn þeirra sem báru vitni gegn Josef var Leon Schwarzbaum, pólskur gyðingur sem var einn þeirra sem hlaut frelsið þegar að Sovétmenn réðust inn í búðirnar. Hann sagði fyrir dómi að réttlæti væri hans æðsta ósk og það næðist einvörðungu með sektardómi yfir Josef Schütz.

Leon Schwarzbaum féll því miður frá áður en dómur var upp kveðinn og náði því ekki að sjá kvalara sinn loksins dæmdan.

Það er samt sem áður talið ólíklegt að Josef Schütz muni nokkurn tíma dvelja í fangelsisklefa sögum aldurs og heilsuleysis.

Josef Schütz er elsti einstaklingurinn sem dæmdur er fyrir glæpi í helförinni og afar líklega sá síðasti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum

Einn ríkasti maður Þýskalands sagður hafa sviðsett dauða sinn fyrir sex árum
Pressan
Í gær

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn

Laus úr fangelsi og brátt laus úr hjónabandi – Þetta var dropinn sem fyllti mælinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi

Hrikalegt ástand í Dúbaí: Allt á floti og lúxusbílar á bólakafi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku

Þessi vinsæli drykkur er verri en kaffi þegar kemur að því að valda andvöku
Pressan
Fyrir 3 dögum

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar

Mikill eldur í einni elstu byggingu Kaupmannahafnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Átta ára fangelsi fyrir að stela bíl – 89 ára blind kona í framsætinu – Myndband

Átta ára fangelsi fyrir að stela bíl – 89 ára blind kona í framsætinu – Myndband
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á

Hversu oft þværðu ræktarfötin? – Þessu flaska flestir á
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“

Tæpu ári eftir handtökuna er ritari Heuermann ekki enn komin yfir áfallið – „Ég keypti þessar pitsur fyrir hann“