Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Berlingske Media sem gefur B.T. út.
Vegna þessara breytinga verður ritstjórnum blaðsins í Árósum, Álaborg og Óðinsvéum lokað. Í heildina verða 20 stöður lagðar niður. Þessar stöður eru á fyrrnefndum ritstjórnum, í auglýsingadeild og bakvinnslu. Ritstjórum og fréttastjórum verður fækkað.
Í fréttatilkynningunni er haft eftir Pernille Holbøll, aðalritstjóra B.T. að miðillinn hafi vaxið hratt á netinu síðustu fjögur ár og sé nú orðinn stærsti danski netmiðillinn. Á sama tíma hafi sala á blaðinu í pappírsformi dregist saman og muni fljótlega ekki bera sig fjárhagslega. Af þeim sökum verði kröftunum nú beint að netinu, þar séu flestir lesendur miðilsins.