En 2013 fannst hún uppi á háalofti þegar verið var að ganga frá eigum látins ættingja. Þar hafði hún hafst við í rúm 30 ár. Daily Star skýrir frá þessu.
Nathalye De Almeida heyrði margar sögur um Manuela þegar hún var að alast upp en hún var 8 ára þegar Manuela hvarf. Það var móðir hennar sem átti Manuela og hélt mikið upp á hana.
Það var Nathalye sem fann skjaldbökuna þegar hún var að ganga frá eigum látins afa síns. Hún fann Manuela í gömlum trékassa, sprelllifandi eftir 30 ár uppi á háaloftinu.
„Við vorum í áfalli! Mamma fór að gráta því hún skildi þetta ekki. Við höfðum fundið Manuela,“ sagði Nathalye.
Fjölskylduna grunar að Manuela hafi lifað á termítalifrum.
Nú eru tæp 10 ár síðan Manuela kom í leitirnar og hefur hún það enn gott. En saga hennar var ekki öll sögð með því að hún kom í leitirnar því dýralæknir komst síðan að því að Manuela er karlkyns. Fjölskyldan breytti því nafni hennar og heitir skjaldbakan nú Manuel.