Ekki er vitað hverjir voru að verki en morðingjarnir, sem voru tveir, voru á mótorhjólum. The Guardian segir að í yfirlýsingu frá byltingarverðinum segi að morðið hafi átt sér stað um hábjartan dag og var „alþjóða hroka“ kennt um það en það eru orð sem byltingarvörðurinn notar venjulega um Ísrael og Bandaríkin.
Þessi ásökun byltingarvarðarins og það hvernig árásin var framkvæmd hefur vakið upp vangaveltur um tengsl við aðrar svipaðar árásir í landinu sem hafa margar beinst að kjarnorkuvísindamönnum. Hefur Ísraelsmönnum verið kennt um þær.