Lítið hefur komið fram um hvaða sönnunargögn þýska lögreglan er með en þó skýrði stjórnandi rannsóknar hennar frá því nýlega að lögreglan hefði góð sönnunargögn. Hafa erlendir fjölmiðlar sagt að um hluta úr náttfötum Madeleine sé að ræða og hafi þeir fundist í húsbíl Christian B.
Í samtali við The Sun deildi Chancellor hugmyndum sínum um hvernig lögreglan geti fundið sönnunargögn í málinu og benti á að stór mál leysist oft vegna smávægilegra sönnunargagna.
Chancellor vann mikið við rannsóknir gamalla sakamála þar sem lögreglan hafði lítið komist áfram við rannsóknina. Hann stingur upp á aðferðum sem sé hægt að nota til að finna hár og efni úr fatnaði.
Hann segir að best sé að nota límpúða til að finna hár og efni úr fatnaði á yfirborði hluta. En þegar um djúpar sprungur eða rifur sé að ræða sé best að nota sterkt límband.
Hann segir einnig að gott sé að nota handryksugu með sérstakri síu. Það telur hann hugsanlega vera eina möguleikann í þessu máli við rannsókn á húsbíl Christian B. Hægt sé að nota ryksuguna til að finna sönnunargögn í bílnum.
Hann hrósar lögreglunni einnig fyrir þolinmæði við rannsóknina sem hefur nú staðið yfir í 15 ár. „Það vekur aðdáun mína að svo miklum tíma hafi verið varið í þetta og segi enn að rannsókninni sé ekki lokið,“ sagði hann.